You're still ugly.. pass me another beer

Djmmers Píur ;)

17.02.2008 19:37:16 / disa

London beibí!

Jææja þá er ég að fara til London sem Au Pair í 3 mánuði! Getið fylgst með því á þessari síðu;


happadisin.bloggar.is

:haha: vííí get ekki beðið!

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 19:07:25 / disa

I've got wind in my hair!

,,við vekjum ykkur korter í 9", ,,við vekjum ykkur korter í 8", Willy Wonka, Willy Wonka :)

 Jáá, ferðin byrjaði með klikkuðu stressi því að ég vaknaði 2 tímum seinna en ég ætlaði mér og átti eftir að setja í þvottavél og þurrkara! Ég henti öllu niðrí töskur á mettíma, gleymdi engu! En svo fór ég að rifja upp hvað ég þyrfti nauðsynlega og uppgötvaði það að PASSINN minn væri hvergi! Í þvílíku stresskasti leitaði ég útum allt, þá meina ég ALLT! Hringdi niður á Leifsstöð svona 10 sinnum, fann ökuskirteinið mitt, gamlan passa og ISIC kort, en nei þá er það ekki nóg. Þrátt fyrir það að maður eigi ekki að þurfa passa venjulega innan Evrópu. Ég hringdi í Elínu og hún var ekki heldur búin að finna passann sinn... getið þið fundið stressið?8| :) Elín fann samt sinn á síðustu stundu :)

Árni var svo góður að skutla okkur út á flugvöll! Ég þurfti að tala við sýslumann á flugvellinum og fá bráðabirgðapassa sem kostaði 8250 krónur takk fyrir góðan daginn! Var þarna inni í svona hálftíma og þegar ég kom út þá fórum við beint upp og sáum final call, ég dreif mig inn í eymundsson og keypti Cosmo (þeir sem þekkja mig vita ég verð að fá cosmo ef ég er að ferðast) og svo í einhverju stressi við að finna passann og flugmiðann við final checkin þá hef ég svissað blöðum og skildi eftir nýkeypta rándýra cosmo og tók með mér Leif!

 Þegar við lentum þá vorum við orðnar þvílíkt svangar og þá talaði pabbi Elínar um að fara á Hóruna... ég alveg guð hvað er eiginlega í gangi! 8| Þá er hóran staður sem heitir Horacio :) Næstu dagar voru æðislegir, sól og maður vaknaði alltaf við ,,Willy Wonka, Willy Wonka" :) Þegar Gummi pabbi Elínar og Tóta voru með okkur fórum við ýmislegt, marga rúnta, fórum til Murcia í mollið, sáum þar fótboltavöllinn hjá Real Murcia og svona :) Svo þegar þau fóru tókum við á móti Árna og þá minnkaði drykkjan nú á okkur og við höfðum það sem allra mest kósý :)

Áramótin voru hinsvegar klikkuð! Byrjuðum á Hórunni, borðuðum þar allt í læ mat með fullum sal af fólki og svona 20 Íslendingum, með fríu áfengi takk fyrir góðan DAGINN! Vorum orðnar helvíti skrautlegar og vorum pottþétt life of the party! Klukkan  fimm mínútur í 12 rukum við svo öll út og skáluðum í kampavíni og horfðum á flugelda, en þar sem það var enginn vindur þá datt alltaf úr sprengjunum í augun á okkur, það var ógeðslega vont! Við pruðum líka spænska venju, vorum búin að kaupa litla krukku af 12 risastórum vínberjum sem átti að gleypa á þeim 12 slögum þegar klukkan slær 12. En þar sem það var engin klukka og við heyrðum ekki slögin þá GÚLPUÐUM við þeim öllum í okkur í einu og lá við að maður kafnaði af áfergju, við ætluðum sko að vera hamingjusöm árið 2008! Svo birtist vinkona Elínar með vini sína og við röltum á einhverja staði og vorum þar alveg mjöög lengi

Þessi ferð var þvílíkt góð, æðislegt að komast í smá hita og stinga af þegar versta veðrið var hérna heima, gaman að vera í húsi fyrir okkur og svona þó það hafi nú verið lítið um eldamennsku :) Takk Elín fyrir að bjóða mér :haha: Sakna Ray & Jay :|

 

djóóók


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 18:44:52 / disa

Jólin...

Já góðan daginn, er lægð yfir landinu eða?

Það er nú ekki lítið sem að þið elskurnar hafið verið að kíkja á síðuna þrátt fyrir mjög lélega frammistöðu okkar Katrínar :) Vil bara byrja á að óska ykkur gleðilegra jóla og áramóta.... betra seint en aldrei?;)

 Jólin voru æðisleg hjá mér! Byrjaði jólin 22. des með því að skella mér á tjúttið með Gunnari Má eftir partý hjá Agnesi og Steina. Í partýinu var mikið í gangi, stelpusleikir inní eldhúsi, ég flaug á hausinn út af ónýtum stól, strákur bauð milljón fyrir að sjá brjóstin á mér, sami strákur var með punginn útum buxnaklaufina þannig það var lítið að marka hann:$ Þá fórum við Gunni niðrí bæ og hittum fullt af fólki, þar á meðal Sveppa! Þarf endilega að henda inn vídjóum og myndum af því kvöldi inná www.myspace.com/teasedis.

Á Þorláksmessu fórum við fjölskyldan uppí sveit til ömmu og afa og fórum í singstar og buzz langt fram á nótt :) Á aðfangadag var búið að snjóa svo mikið að við gátum ekki staðist það og hentum okkur út, eða ég dróg alla ,,yngri kynslóðina" út, ég og Anna Sara fundum lítinn gúmmíbát og renndum okkur á honum, en þegar Kíra beit hann í sundur fundum við okkur annað að gera, og ákváðum þá að gera snjókalla. :haha: Fengum Líney og Haffa út í snjóinn að hjálpa okkur, enduðum á að gera tvo snjókalla sem áttu að vera amma og afi og svo snjóhund sem var Rökkva, hundurinn hennar Líneyjar. Ég skal setja mynd af því hingað inn, þvílíkt flott :) Eftir góðan tíma utandyra fórum við inn og borðuðum ljúffengan kalkún með öllu tilheyrandi. Þá var komið að pökkunum og ég er mjög ánægð með þær fáu gjafir sem ég fékk... fékk flakkara frá múttu, gjaldeyri og skartgripi frá ömmu og afa og svo fengum við systur allar Fóstbræðraseríurnar á DVD frá Líney og Haffa :haha: 

Vorum þarna aðra nótt en fórum svo heim þann 25 til að hafa það kósý heima áður en ég fór til Torrevieja með Elínu þann 26!

 Ég gaf mjög fáar jólagjafir sökum peningaskorts og ferðarinnar en ég er ennþá með fullt af jólakortum sem ég á eftir að fara með

Hekla, Eygló, Katrín, Ingunn, Elín, Freyja, Særún, Markús, Díó, Alex, Ólöf Brynja... Náði ekki að koma með kortin ykkar því ég var föst með bílinn í Kópavogi yfir jólin og hafði mjög lítinn tíma áður en ég fór út :) En ég mun koma óvænt með þau til ykkar :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 14:09:55 / disa

Iceland Express klúúður

Ég fór til Barcelona 9. nóvember til að hitta Elínu krúttí, hún er búin að búa þar síðan 31. ágúst  en hún er loksins að fara koma heim og svo erum við bráðum að fara til Torrevieja sem er svona bærinn hennar :) Verðum þar um áramótin, verðum 2 vikur, fyrstu vikuna verðum við með pabba hennar og kærustunni hans og svo fer hann og Árni kemur í staðinn :) Þetta verður klikkað :D En já þetta blogg er búið að vera í bígerð í mánuð og loksins kominn tími á að þetta komi inn! Efast samt stórlega um að þú eigir eftir að lesa allt, en þetta er frekar fyndið hvað ég var mjög óheppin í þessari ferð og hvað Iceland- Express skeit langt uppá bak!:evil:


Eftir langa bið og spennu fór ég út á flugvöll og var ein eitthvað að dúlla mér þarna með hvítvínsglas í hendi og ógeðslegan mat úr kaffiteríunni með tónlist í eyrunum að lesa Cosmo, en ekki hvað;)

Ég fór uppí flugvél tilbúin fyrir ævintýri en LITTLE DID I KNOW!! Ég var þarna í flugvélinni eftir mjög lítinn svefn og mikið stress að reyna lúlla en gat ekki hætt að hugsa um hvort Elín myndi koma á réttan flugvöll og á réttan stað! :) Það eru 3 flugvellir þarna og allir risa stórir! Eina sem ég vissi var að það var best að elta fleiri Íslendinga í gegnum flugstöðina, byrjaði á því að elta alla að töskubeltinu beið þar í örugglega hálftíma þar sem ég sá aldrei töskuna mína og flestir farnir út. Þá kemur einhver security gaur og labbar meðfram beltinu, þá hafði hún dottið af beltinu, hann tekur töskuna upp og ætlar að labba burtu með hana og ég byrja hlaupa á eftir honum. Svo fer ég fram, bjóst við svaka stórri fríhöfn en það var bara hlið og svo útgangur, þegar ég gekk í gegnum hliðið og sá Elínu, aðeins of sætu þá var ég svo ánægð að ég hélt ekkert gæti komið uppá! :) 

Svo tókum við leigubíl niðrá Hótel, sem var smá crappy, rúmið og lyftan að detta í sundur og svona:) en við gerðum þetta mjög kóósý :) Ég lét hana fá gjafir frá familíunni og gjafirnar mínar :) Þá komumst við sko í fíling, rifjuðum upp Marmaris ferðina alveg alla þessa ferð hehe og spiluðum fullt af góðum lögum sem minna okkur á Tyrkland :) Þegar við vorum að fara út þá fattaði ég það að nýji síminn minn, sem ég var NÝbúin að fá, var horfinn!! Jæja nóg með það, vonaði bara það besta og hélt kannski MÖGULEGA að hann myndi finnast, leigubílsstjórinn myndi kannski koma með hann  eins og einn gerði í Tyrklandi þegar Palli týndi sínum eða jafnvel hann væri í lobby-inu en NEI! Einhver hringdi frekar fyrir 15.000 (held ég, er ekki búin að fá nýjustu tölur) kr á einum degi!!

En við erum Team- Hoover og létum það ekki stoppa okkur heldur fórum beint á djammið með fullt af glowsticks :D Ég var þvílíkt paranoid að labba um þröngar götur og hrædd við svona gangsta hópa en Elín algjört pró hehe þannig mér leið semí seif hehe. Svo fórum við á Römbluna og VÁ hvað voru margar hórur þarna! Bara svartar og sko ógeðslegar!

Við fórum inn á Fellini um eitt leitið og það var ekkert að gera þar þannig við fengum okkur bara nokkra drykki og svona. Heyrðu þegar ég var að fá mér fyrsta drykkinn sá ég hann bara fljúúga á mig alla og ég var blaut frá brjóstum og alveg niður, þetta var alveg þvílíkt magn, eins og heill sjór í þessu eina glasi!!8| Við eignuðumst bar vinkonu þarna og hún var alltaf að splæsa á okkur staupum og svona þannig við urðum soldið skrautlegar!

Eftir þennan bar fórum við á Catwalk sem er risa stór og sudda flottur staður á tveimur hæðum, techno hæð og hip hop hæð! Vorum að dansa við sjúklega hressa stráka hahaha!;) En svo var ég svo léleg, drepast í löppunum og þreytt eftir flugið þannig við fórum heim um 4 leytið :)

Laugardagurinn byrjaði rólega, fórum á Römbluna að fá okkur ís og út að borða og svona, sáum sjúklega flotta minimal acoustic band spila, þvíílíkt flott! Hendi kannski vídeó af því hingað inn! Fórum svo á Sex Museum hehe. Eftir kósý dag í borginni fórum við á tjúttið!! Fórum aftur til bar vinkonu okkar á Fellini og fengum frí skot og ég drakk svona 4 drykki á 10 mín hehe Marmaris Style!! Svo fórum við aftur á Catwalk og hittum einhvern vin Elínar, fórum svo á Línuna og ætluðum að panta okkur kokteila en þeir voru viðbjóðslegir, hvernig er hægt að klúðra Blue Hawaiian ? We miss our Barboy!! Þeir voru ekki að drekka vinur hennar og vinur hans og þeir voru á móti því að við vorum að drekka þannig ég tók Tópas pelann með 1/4 eftir og þambaði það í einum sopa, bara svona til að rub it in their face hehe :) Svo ætluðu þeir að skutla okkur á hótelið en þeir villtust þvílíkt, lögðu hjá einhverju byggingasvæði og ég og Elín rifum niður einhvern svona plast borða og bundum okkur saman hahaha :lol: mjööög fyndið! Svo löbbuðum við í svona 2 tíma að reyna leita að hótelinu, báðar að drepast í löppunum! Þegar við svo loksins fundum hótelið þá byrjuðu strákarnir að verða þvílíkt dramaqueens!!

Settumst á bekki fyrir framan hótelið og sögðum þeim að þeir mættu ekki koma með okkur inn (einhverjir litlir ljótir guttar, reyndar var einn 22 ára en hann var lítill! Fíliggi þannig hehe, fíla þá stóra hehe) og þá byrjuðu þeir bara að öskra og öskra á okkur á spænsku og Elín alveg að öskra á móti, ég skildi ekki neitt! Kom einhver gaur og settist hjá mér til að tékka hvort allt væri í lagi hehehe. Þetta gekk á í svona klukkutíma, þeir komu alltaf aftur og aftur eftir að hafa rifist í okkur og bara neinei þið eruð ekki hórur og vondar og ljótar, svo heyrði maður þetta aftur og aftur og svo komu þeir aftur og báðust afsökunar og við alltaf bara NEI þið megið ekki koma með!

Svo bara tókum við því rólega á bekkjunum, komin smá sólarglæta og svona hehe :) Fórum svo á hótelið og lúlluðum langt fram á næsta dag!! Fengum svo sms um að þeir væru með kortin hennar Elínar og við alveg skíthræddar við þá, veit nú ekki af hverju eftir á en við vorum það hehe, hittum þá fyrir utan Mc Donalds þar sem var security gaur og svona :) Svo fengum við kortin eftir smá og þeir ætluðu að fara elta okkur en við vissum ekkert hvernig við áttum að losna við þá en svo birtust þessar ææðislegu stelpur úr flugvélinni sem björguðu okkur hehe :) Við eltum þær þangað til við sáum þá hverfa hehe svo forum við að borða á pizzastaðnum okkar og ætluðum að fara til barvinkonu okkar en staðurinn var lokaður þannig við forum á SJÚKA staði!! Carpe Diem og Shoko! Það er einhver fótboltagaur sem á staðinn Carpe Diem og staðurinn er svo sjúklega flottur. Maður er að labba bara hjá nokkrum stöðum og svo er svona lítill glerkassi sem þú labbar inní og þá er staðurinn underground, geðveikt vel skreyttur og bara vá :) en við vorum ekki í svona rich bitch filing þannig við forum á Shoko sem er við hliðiná, virkilega kósý staður, kerti, sófar og dansarar! Við föttuðum eftir á að þetta var eitthvað módelapartý, vorum að fylgjast með þvílíkri myndatöku :Þ Svo kom einhver ,,ameríkani” og fór að spjalla við okkur, soldið sætur :) En ég beilaði á hann og sagðist vera fara í flug eldsnemma um morguninn en svo fórum við á Línuna. Löbbuðum fram og til baka, en enduðum á litlum stað þar sem við vorum í svona 2 tíma, þetta var algjört bíó, KÍNVERJAR að dansa, gamall fullur kall að dansa og eitthvað megahönk sem var ber að ofan að uh hreyfa sig :) Vá hvað var fyndið að horfa á þau!! :D Náði sumu á video og ég skal reyna setja það hingað inn :Þ Fórum seint heim og ég var með svo bólgnar lappir að ég komst ekki í sandala haha :D

Ég vaknaði með því að Elín kom og sótti mig, við settum töskurnar í geymslu, nema tölvuna og fórum í bæinn hennar Elínar. Sóttum stelpurnar, gáfum þeim að borða, fórum aftur með þær í skólann og vá hehe Elín á aðdáendur þarna, gamlir verktakar í götunni sem hún býr í! Svo fórum við í lest þar sem var gaur að syngja fyrir pening og VÁ hvað hann söng vel!! Á leiðina í lestina þá fattaði ég að önnur öxlin mín er minni en hin hehe, allavega gat ég haldið tölvutöskunni hægra megin en ekki á vinstri öxlinni :D Þegar við komum aftur til Barcelona þá fórum við á Hardrock Café og sáum STRAWBERRY DAIQUIRY… vá hvað við vorum spenntar fyrir honum, en neeei þá var hann bara vondur :/ Hehe alltaf að bera allt saman við Tyrkland :) Svo vorum við bara chillin í Barcelona og kíktum að versla smá og kemur ekki bara Americano sem ég hafði ditchað kvöldið áður, ég e-ð ,,Elín, labba hratt, hratt, hratt, inní næstu búð!!”. Kemur hann ekki bara hlaupandi á eftir okkur bara ,,heeey you liar" hehehe BUSTED! En svo fórum við á smá kaffihús og svo þurfti ég að fara út á flugvöll! :( Alltof fljótt að líða! Fattaði á kaffihúsinu að fluginu hefði verið flýtt um hálftíma.

Þegar ég kom á flugvöllinn, á mjög góðum tíma, þá dröslaði ég öllum töskunum inn og fór í ooofurlanga röð… þegar ég loksins kom að borðinu sagði kellingin að við færum ekki í loftið kl 11 heldur 4 og við fengum einn matarmiða.

Ok, ég gæti lagt mig smá, en nei var ekki með síma/klukku. Ok, gæti lesið Cosmo, en nei var búin með bæði. Ok, gæti kannski farið á netið, neibb ekkert net. Ok, gæti kannski verslað smá, neibb allar búðir lokaðar um leið og ég labbaði upp stigann í fríhöfnina!

Ég settist niður á bekk og fór að hlustá tónlist og fór í kapal :) en svo varð hún batteríslaus og biðin í flugið lengdist til 5!! Það var svoo kalt þarna inni á flugvellinum og hvergi hægt að kaupa neitt til að hlýja sér. Úff hvað ég varð svöng allt í einu, fór að rölta um flugvöllinn og þá voru svona 3 samlokustaðir, sem einmitt tóku ekki matarmiðann og töluðu bara spænsku. Ég spurði einhvern Íslending hvar ég gæti borðað og þau sögðu stað, sem ég fór á en neeei hann var lokaður! Þá endaði ég á að smakka samloku sem var ógeðsleg! :) Tók þá einmitt eftir því að BARA minn matarmiði var NOT VALID FOR USE! 

Hvað gæti ég gert næstu 4 tima? Jæja ég spjallaði við einhverja Íslendinga, sem voru nýkomnir og þau voru að kvarta yfir því að fluginu þeirra seinkaði um klukkutíma hehe. Þau fóru í fyrra fluginu heim! Komu seint og fóru fyrr, en samt voru þau að kvarta!

Ég hringdi í múttu í klink síma sem gjörsamlega ÁT klink og hún fór á síðuna hjá Iceland Express og sá eftirfarandi:

If your flight is delayed for other reasons, e.g. technical reasons, Iceland Express will compensate you as follows.

  • If a delay occurs of more than two hours from the scheduled time of departure, you will be entitled to receive a voucher to a value of GBP 5, or the equivalent amount in DKK, EUR or ISK.
  • If a delay occurs of more than four hours from the scheduled time of departure, you will be entitled to receive a voucher to a value of GBP 7,50, or the equivalent amount in DKK, EUR or ISK.
  • If a delay occurs of more than six hours from the scheduled time of departure, you will be entitled to receive a voucher to a value of GBP 10, or the equivalent amount in DKK, EUR or ISK.
  • If the delay requires you to wait overnight and should you have no other alternative accommodation available, Iceland Express will arrange your overnight hotel accommodation (one night only to include breakfast) and transport to and from the hotel.

Hmm ég var þarna á flugvellinum í 9 eða 10 tíma og fékk einn ógildan matarmiða, svaf á ísköldugólfi á ísköldum flugvelli mjöög svöng. Það var ENGINN sem maður gat talað við um þetta, eins og til dæmis matarmiðann og gistinguna.

En svo tryggði mér að það væru bara Íslendingar í kringum mig og hvíldi mig í smá stund. Bekkirnir voru samt þannig að þú gast ekki legið, heldur voru þetta bara sæti með svona handadæmi á milli. Þegar ég vaknaði þá var búið að seinka fluginu aftur til 6! Þá gafst ég gjörsamlega upp og reyndi að sofna á ísköldu gólfinu, alveg sama hvort ég myndi ná fluginu eða ekki…

Loksins klukkan half 7-7 labbaði ég inní vélina og það dropaði úr henni á mig, en þegar ég settist niður rotaðist ég úr þreytu. Vaknaði með geðveika hellu og eyrnaverki, kíkti út og sá land, hélt við værum komin til Íslands en nei þá vorum við komin til Skotlands, til að taka bensín, kommon eftir alla þessa bið, gátu þeir ekki fyllt tankinn? Og voru þetta kannski olíudropar sem láku á mig þegar ég labbaði inn að aftan á vélinni? En fyrst ég var nú vöknuð þá ákvað ég að fá mér smá að borða og hringdi í mjög svo samkynhneigðan, ó-professional, stressaðan og pirraðan flugþjón og spurði hvort ég þyrfti að borga fyrir mat ef ég myndi fá mér, og hann sagði að það væri einn drykkur að eigin vali í boði, VÁ TAKK!! :haha: fékk mér vatnsglas og pizzastykki og sagði honum að ég ætlaði ekki að borga fyrir þetta og hann gæti bara tekið helvítis matarmiðann, hann byrjaði að þræta við mig að ég hefði bara getað notað miðann í flughöfninni úti, halló, hann var not valid for use? Jæja já svo pantaði ég mér gos en þurfti að borga fyrir það! Vá Iceland Express, takk æðislega fyrir 600 kallinn sem ég fékk til að borða yfir þá 15-16 tíma sem þetta ferðalag heim tók!

Allt í einu fékk ég þvílíkt stresskast, mamma ætlaði að ná í mig, og ég myndi taka bílinn hennar þegar hún myndi fara til Bandaríkjanna um 11 leytið (að ég hélt). Spurði hvenær við ættum að lenda og hún sagði 12, nett stress þar sem ég var ekki með síma, pening, far eða lykla heima. Fólkið sem sat með mér bauðst til þess að skutla mér heim, algjör æði. En svo kom ég á flugvöllinn og hljóp í gegnum flughöfnina að leita að klinksíma en það var ekki einn einasti sími á flugvellinum, fór hjá tollinum og fékk að hringja þar, þannig að ég var ekki tekin í tollinum í fyrsta skipti :) En þá fór mamma ekki í loftið fyrr en um 3 og stóð fyrir utan hliðið!! :D

Um leið og ég keyrði af stað heim þá kom fugl og skeit á gluggann! Svo fór ég á Stælinn og skrifaði á mig burger en það var svo mikil sósa á honum að ég gat ekki borðað hann! Ég skrifaði þetta blogg tvisvar en blog helvítis central eyddi alltaf færslunum áður en ég náði að copy-a!  Svo eftir þetta virkaði ekki netið þangað til mamma kom heim aftur. Það var ekki til neinn matur né klósettpappír heima, hafði gleymst að kaupa, þannig ég þurfti að fara versla inn fyrir heimilið með síðasta peningnum mínum og orlofi!

On top of everything þá var ég orðin veik af þessari æðislegu lífsreynslu!


» 8 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 22:36:28 / disa

I KNOW YOU'RE GONNA WANT ME

ójáá er í fíling!!

Er að pakka og læra og gera mig til og læti fyrir Barcelona á morgun!! VÚHÚ loksins komið að því!! Get ekki beðið!!

Er semsagt að fara til Barcelona að hitta Elínu sætu sem á by the way afmæli í dag!! Til hamingju elskan :)

 Lofa að koma með einhverjar myndir eftir helgna;)

Katrín, bloggaðu á meðan ég er úti ;)

 SHIIIT hvað ég ætla taka vel á því !! :)

 skemmtið ykkur á messunni ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 10:17:46 / disa

JEE JEEE JEEE

 

DJAMMERS ER ORÐIN 3 ÁRA OG 100.000 MANNS HAFA KOMIÐ HINGAÐ INN :þ


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 17:53:47 / Katrín

Hommar og Lesbíur

Hommar og Lesbíur ( ég tala sem hlutlaus aðili )

Ég lenti í svoldiði skemmtilegum samræðum í dag við bekkjasystur mína hana Nönu. Við fórum að tala um réttindi homma og lesbía. Hún sjálf er lesbía og er gift konu sem að hún hefur verið með í 4 ár.

Við byrjuðum að tala um hjónaband samkynhneigðra. Eins og við flest vitum að þá er ekki leifilegt fyrir fólk af sama kyni að ganga í hjónaband. Það er brot á trúnni og svo er orðið hjón ætlað fyrir karl og konu . Hins vegar geta samkynhneigðir sótt um að vera skráðir í sambúð. Hvað kallast það?Er rétt að banna hommum og lesbíum að gifta sig ?

The image “http://www.gay-marriage-guide.com/images/gaycouplemarried.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.


Síða leiddi samtalið okkar að börnum. Að hommar eða lesbíur ættleiði barn saman . Eins og hann Páll Óskar syngur um þá elskar samkynhneigt fólk ekkert öðruvísi en við . Hvað er þá rang við það að heilbrigt fólk sem að elskar hvort annað eigi barn ? En á hin bogin fer maður að hugsa er heilbrigt fyrir barnið að alast um hjá foreldrum af sama kyni? Lítil stelpa með tvo pabba .. lítill strákur með tvær mömmur ? Þarf barnið ekki að hafa bæði móður og föður ýmind ?

http://images.jupiterimages.com/common/detail/48/35/23113548.jpg

Hvað með fordóma ? Ég spurði einmitt Nönu hvort að hún hefði fundið fyrir miklum fordómum. Hún sagði mér þá frá því að hún getur ekki kysst kærustuna sína á almanna færi hún sagði mér frá því að hún hefur lent í því að mömmur taki fyrir augun á börnunum sínum ef að þær eru að kyssast nálægt. Og þá er hún ekki að tala um að þær séu í hörku sleik heldur bara svona ofur eðlilegt. Það er ekkert eðlilegra en að sjá par í kringlunni stelpu og strák kyssast en akkuru fer þá sumt fólk svona í kerfi þegar það sér ástfangið fólk kyssast af sama kyni ? En á hin bogin á þá er það kanski bara óeðlilegra að sjá það ? Ég veit það ekki...

http://www.k750i.mike82.cz/wallpapers/lesbian-kiss.jpg

Svo í endan þá fórum við að tala um muninn á fordómum gagnvart hommum og lesbíum. Hún sagði mér að það væru miklu meiri fordómar gagnvart homumm heldur en lesbíum. Hommar þættu kanski meira " ógeðslegir " ( segi þetta með fullri virðingu ) heldur en lesbíur. Líka að þú sjáir það í raunni strax hvort að maður sé hommi því að það eru svona alls konar homma taktar...en eru lesbíur ekki með lessu takta ??

http://www.lumiere.net.nz/reader/media/images/img_outtakes1.jpg
The image “http://farm1.static.flickr.com/67/177150924_f05ab2a2a0_m.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
http://www.dw-world.de/image/0,,1349383_1,00.jpg
http://d.yimg.com/us.yimg.com/p/ap/20070615/capt.d1d385c9a1ee41f0906e22dfbdc1f66f.colombia_gay_rights__wfm101.jpg

Jæja þá er ég búinn að létta á mér öllum þessum pælingum.. endilega segið ykkar skoðunn!:) Hafið það gott um helgina :)

» 6 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 09:27:45 / disa

jááá góðan dag góðan dag...

...... glens og grín það er mitt faaag!

 


Eldri kona fór í læknisskoðun sem gekk mjög vel. Eftir nokkra þögn leitar konan ráða og segir: Við hjónum höfum ekki elskast í mörg ár. Hvað getur maður gert til að auka kynlöngun mannsins míns?

Hefurðu prufað Viagra spyr læknirinn.

Hann vill ekki einu sinni taka inn verkjalyf þó hann sé með höfuðverk segir konan.

Ég kann ráð við því segir læknirinn. Þú mylur Viagratöflurnar og setur út í kaffið hjá honum og hann tekur ekki eftir neinu.

Konan varð mjög glöð og yfirgaf læknastofuna í flýti.

Viku síðar kemur hún aftur niðurbrotin og brúnaþung.

Læknirinn spyr hvernig hafi gengið. Herilega, segir konan, herfilega.

Virkaði ekki ráðið eins og ég sagði þér spyr læknirinn.

Jú það virkaði mjög vel. Hann reif sig strax úr öllum fötum og tók mig á matborðinu. Það er besta kynlíf sem við höfum haft í 25 ár.

Hver er þá vandinn spyr læknirinn? 

Ég get aldrei aftur látið sjá mig á McDonalds, segir konan og roðnaði


Jááá, heyrðu þessi síða er að verða eins og í gamla daga aftur! Hvað er það sem þið viljið á síðuna, þetta er svakalegt :) Býst ekki við öðru en að Katrín hafi farið á djammið um helgina og tekið böns af myndum, ekki var ég að djamma, ég er orðin soldið slöpp í þessu! Endilega komið og dragið mig út á djammið!! Mín helgi fór bara í að vinna eins og mófó með smá chilli á föstudaginn, kíkti til Hafdísar og við spjölluðum til 5, þá rotaðist ég úr þreytu og við fórum svo að vinna, mjöög nice :)

Næstu helgi er ég líka að fara vinna!! og þar næstu!! og svo er ég bara í Barcelona og svo vinna helgina eftir það!!

SHITT get ekki beðið eftir að flýja landið :) Meina HALLÓ, haglél í gær!

Núna í dag er bara rigning, sem þýðir bara eitt!! KOMA KÚRA??:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 17:25:17 / Katrín

Kvitta??

Helgin búin ..... vikan að hefjast!
 
 
Ég verð að spurja er fólk bara hætt að kvitta í gestabækur ?? Eða skoðanir ?? Maður er alltaf að sjá að kanski 50-60 manns að koma á dag jafnvel fleiri ... en aldrei neitt nýtt í skoðun eða gestabók? Ég er bara svona að spá því að þegar ég fer að skoða hinar og þessar bloggsíður að þá reyni ég alltaf að muna eftir því að kvitta í gestabókina eftir á ..finnst það bara skemmtilegt...en er fólk bara hætt að kvitta???8|
 
Helgin hjá mér var bara frábær..kláraði handritið mitt með Sigga á föstudaginn og svo kom sætan mín hún Hugga í bæinn á laugardaginn:haha: Fórum snemma niðrí bæ og komum seint heim;) Ég held að við höfum líka komist að því að allir sætir gaurar eru á föstu??:!: Hvað er málið með það hehe?? Kíktum á Cefé parís til að byrja með sem að mér persónulega finnst æðislegur staður svona til að starta djamminu ;) Svo fórum við á Viktor sem að mér finnst mjög súr staður..:!: Enda eru bara ógeðslegir útlendinga perrar þar ! Var einmitt ekki einhverri stelpu nauðgað þar um daginn af einhverjum útlendigum ??
Svo fórum við á Glaumbar og hittum eitthvað fólk ...fórum svo bara saman heim til Huggu og héldum áfram þar...sofnuðum svo sætar saman í rúminu hennar..hún enþá í djamm fötunum ég búin að rífa af mér hverja flíkina á fætur annari útum allt hús...Og fann mér einhverjar voða kósí skítugar náttbuxur hehe:) 
 
En Skóla vikann að hefjast...er að reyna að líta á þetta jákvæðum augum ég hata mánudaga!! Var í Dansi og leik og hreyfingu í dag og gjörsamlega þjösnaði á mér bakinu !! Verð að passa mig nenni ekki að enda aftur uppí rúmi og þurfa að lifa á parkodín forte!
En jæja komið gott í bili .... Notiði þessa góðu viku sem framundan er í eitthvað skynsamlegt ;) 
 
 
 

» 10 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 10:26:46 / disa

waaaaaasabi

wassap wassap?

Rosalega er Katrín búin að vera dugleg, fullt af myndum og blogg og slúður og LÆTI! :)

Ég er ekkert búin að blogga hérna í há herrans tíð og Katrín bloggaði ekki mikið í sumar, samt eruði búin að vera kíkja daglega dúllurnar ykkar!

  • Ég fór á Hróaskeldu í sumar, það var blautt en alveg mjög gaman!
  • Ég fór til Marmaris með '88 árgangnum í MK! Það var BEST í heimi!
  • Eftir 29 daga fer ég til Barcelona að hitta skvísuna mína Elínu (www.blog.central.is/team-hoover, tékk it).
  • Svo erum við Elín að fara um áramótin til Torreveija, Spáni!! :D verður sjúkt

Já ég átti afmæli um daginn, síðustu helgi í mánuðinum og fór með Ingunni, Agnesi og Steina á Eldsmiðjuna sem var heavy nice, fórum svo á Pablo Fransisco sem var allt í læ og svo fór ég ein niðrí bæ og ætlaði að hitta fullt af liði en ALLIR ákváðu að beila og láta mig ekki vita með fyrirvara! Screw u!:whut: þannig ég ætla bara að djamma um næstu helgi, Dirty South baby!! :) Ætlar þú að trylla lýðinn með dirty dancin in the south? ;) Fá sér í og á milli tánna? ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 19:43:00 / Katrín

Nýjar Myndir og fínerí !

Bara að láta ykkur vita að ég er búin að setja inn HELLING af nýjum myndum ... neðst á síðuna undir "myndir 2007" Ég er búin að eiða heilum 3 tímum eða ekkað í þetta þannig að það er eins gott að þið skoðið þetta og skrifið í gestabókina okkar :D Ég er lika búin að gera nýtt slúður og breyta lúkkinu hérna á síðunni :)

Svo ætla ég að vera duelgt í framtíðinni að setja bara myndirnar stax inná ekki hálfu ári seinna ;)

En takk fyrir mig ....og muna að skrifa kveðju í gestó gaman að vita hverjir skoða :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 21:28:02 / Katrín

Þoli ekki þetta kerfi !!!

Ég var búin að skrifa geggjað langt og fínt blogg hérna en svo þegar ég var að ýta á staðfesta þá datt það bara ÚT !!! OG ÉG NENNI EKKI að skrifa það aftur .....Í stuttu máli þá er ég mjög veik í bakinu , var á spítala í gær ....og þarf núna að hanga heima í nokkra daga á mjög sterkum vegkjalyfjum það er bara einn dagur liðinn og ég er strax að verða bjráluð á að liggja bara...en þar sem að ég hef ekkert að gera næstu daga, þá ætla ég bara að blogga á morgun ...nema kanski dísu langi að prófa líka ???? ;) 

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 12:21:15 / Katrín

HÚN Á AFMÆLI Í DAG

Hún á afmæli í dag

Hún á afmæli í dag

Hún á afmæli hún DÍSA

Hún á afmæli í dag:D:D:D:D

 

Til hamingju með afmælið sæta mín vona að þú hafir það ógeðslega gott í allan dag:) Kiss Kiss love you ;)

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 13:31:24 / Katrín

Blogg fyrir Dísu

Dísa er alveg crazy yfir því að ég sé ekkert búin að blogga þannig að ég verð að hlíða henni og henda einu stykki hérna inná;)

Ég átti afmæli núna fimmtudaginn 13 september, æðislegur dagur, það var hálfgert frí í skólanum því að hópurinn minn var búin að gera 30 seck myndina sem að átti að gera, þannig að ég bara tók daginn rólegan og fór svo ó Fahítas hjá systur minni, og svo um kvöldið var bjórkvöld hjá skólanum, fyrsta bjórkvöldið og það var ekkert smá gaman:) Það voru allir ógeðslega fullir og alveg tilbúnir að gera allan fjandan. Eftir bjórkvöldið fór ég svo í eftirpartý og var að til 9 um morguninn þannig að það var mjög gaman;)

Á föstudaginn fór ég svo með mömmu og systir minni út að borða á caruso , ekkert smá gaman :P og á laugardaginn var parý hjá Ragga sem að er með mér í bekk, ég var nú samt bara edrú þar en skemmti mér mjög vel :)

En já það er búið að vera hellingur að gera uppá síkastið , loksins erum við búin með mínútumyndirnar og 30 seck myndirnar og þær eru búnar að vera frumsýndar í skólanum. Það var ekkert smá mikil léttir þegar það var búið. Í þessar viku erum við bara búin að læra að byggja upp sett í studioi og gera dvd diska og cover, og svo er auðvtað búið að fara yfir mínútumyndir hvers og eins og athugað hvaða skot voru falleg og hvað hefði mátt gera betur , mín fékk bara ágæta dóma:)

Í gær þá fórum við nokkur úr skólanum í pool og bjór á players , ég skemmti mér svo vel að ég  missti af strípum í morgun hehe;) Og svo í næstu viku þá erum við bara að fara að læra leiklist , söng og dans, þannig að það er nóg að gera;) Hlakka bara mikið til fyrir utan að syngja fyrir framan cameru hehe það er smá stressandi séstaklega vegna þess að það er ein úr idolinu hún Nana með mér í bekk sem að syngur eins og engill og maður er bara kúkur og kanill miða við hana í söng ;)

Jæja Dísa þá er maður búin að blogga alveg helling;) Þú ert næst, ;) 

 

Love you :*

Katrín 


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 08:51:06 / disa

Katrin!!

Hún á afmælí dag

Hún á afmælí dag

Hún á afmælún Katrín

Hún á afmælí dag!

Til hamingju með afmælið skvísa!! Hafðu það gott í dag og skemmtu þér vel um helgina !! :)

Allir að hringja í kvikyndið og óska henni til hamingju;) En ef þið sjáið hana þá náttúrulega stökkvið þið á hana og knúsið í klessu!!

~Dísa~


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 36
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
~Djamm myndir~